• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon
Picture

Andrews

OMR: Verkumsjón og hönnun

AÐFERÐAFRÆÐI: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2010

Fjölnotahúsið Andrews opnaði í mars 2010.  Húsið stendur við Grænásbraut 700 og var byggt 1959 og gegndi áður hlutverki kvikmyndahúss hersins. Dæmi um viðburði sem hafa farið fram í húsinu frá opnun þess eru: stærri og smærri fyrirlestrar og útskriftir. tónleikar, leiksýningar, uppistand, söngleikir, ballettsýningar, danssýningar og aðrar uppákomur. Auk þess hentar húsið einkar vel fyrir ráðstefnur en þar hefur m.a. verið haldin alþjóðleg gosráðstefna og heilsuráðstefna.
Framvinda, umfang og forsendur
Verkefnið að breyta þessu gamla kvikmyndahúsi í fjölnotahús hófst að fullu í byrjun árs 2010 og lauk um miðjan mars sama ár. Endurnýtingarstuðullinn í verkefninu var, eins og í öðrum verkefnum sem hér eru kynnt, gríðarlega hár. Í framkvæmdinni þurfti meðal annars að stækka anddyri og svið til að húsið gæti þjónað því nýja hlutverki sem því var ætlað. Húsnæðið er í dag allt hið glæsilegasta. Eftir breytingarnar er húsnæðið 950m² nettó (þar af efri hæð um 60 m²). Húsið rúmar 484 manns í sæti og sviðið er um 99 m² sem hægt er að þrískipta. Vegna fjölbreyttra notkunarmöguleika eftir breytingu getur húsið nýst undir fyrirlestra, ráðstefnur, sýningar og aðra atburði. Þeir sem notað hafa húsið bera því mjög góða sögu fyrir afbragðshljómburð og telja það almennt gott fjölnotahús

Helstu atriði, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru sem hér segir:
  • Skipulag var almennt endurnýtt og ef því var breytt fóru flestir hlutir í endurnot í öðrum verkefnum.
  • Sviðið var stækkað upp í 99 m² og hægt er að tví-, ef ekki þrískipta því, en stækkunin tók samt mið af því að endurnýta allt sviðið sem fyrir var í húsinu.
  • Anddyrið var stækkað um 70 m² með því að nota fyrirliggjandi útisvæði sem var undir þaki áður og þá var hægt að koma fyrir aukasnyrtingum sem             nauðsynlegar eru til að geta tekið við þeim fjölda sem húsið rúmar.
  • Sæti voru hreinsuð upp og lagfærð, sem og gólfefni í aðalsal, auk þess sem salurninn var sprautaður svartur og sviðið málað svart.
  •  Raflagnafæðingar og lampastæði voru endurnotuð þar sem því varð við komið og það uppfyllti reglugerðir.
  • Kerfisloft voru endurnotuð og endurnýtt í húsnæðinu vegna þess að lampastæði voru endurnotuð.
  • Gert var við hita- og loftræstikerfi og þau einfölduð.
  • Þó nokkuð af efni og tækjum var tekið til hliðar (geymt á lager) og hefur verið notað í önnur verkefni eða verður notað síðar.

OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is