• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon
Picture

Atlantic Studios

_OMR: Verkumsjón og hönnun

AÐFERÐAFRÆÐI: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2009

Stór svartur kassi (Black box) við Grænásbraut 501, Atlantic Studios  hýsir í dag stærsta kvikmyndaver Íslands. Húsnæðið Grænásbraut 501 á Ásbrú var upphaflega fyrsta stóra flugskýli hersins, skömmu eftir að flugvöllurinn á Vallarheiðinni var byggður um og eftir 1950. Húsnæðið hýsti síðar viðhaldsþjónustu fyrir bíla og tæki hersins. Það er nú um 5000m² og skiptist í kvikmyndastúdíó sem er 2200m², en hinir 2800m² skiptast í skrifstofurými á tveimur hæðum, hreinlætisaðstöðu, lager og geymslur (eftir er að fullklára skrifstofuálmuna). Utan við bygginguna er 7000m² steypt afgirt plan sem rekstraraðilar áætla til notkunar fyrir uppbyggingu á kvikmyndasviðum utandyra.
Framvinda, umfang og forsendur
Verkefnið hófst seinni hluta september 2009 og ráðgjafi skilaði af sér því svæðinu, sem framkvæmdin náði til, um miðjan nóvember 2009. Endurnýtingarstuðullinn í verkefninu er og var hár, hvort sem sneri að verkefninu beint eða sem skilaði sér í önnur verkefni á svæðinu. Af helstu endurbótum í húsnæðinu má nefna að hita- og hljóðeinangrun hefur verið bætt og rafmagnsmál hafa verið endurnýjuð til að standast kröfur kvikmyndaframleiðanda í heiminum í dag. Einnig má geta þess að útsogskerfi í húsinu var endurnýtt og lagfært, þannig að hægt er að reykræsta húsið á stuttum tíma. 

Helstu atriði, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru:
  • Skipulag var almennt endurnýtt og ef því var breytt fóru flestir hlutir til endurnota í öðrum verkefnum.
  • Fjarlægð voru öll tæki og vinnulyftur í aðalsal og hliðarsölum og aðalsalurinn gerður að einum stórum geimi. Flest öll tækin voru endurnýtt í önnur verkefni.
  • Almennar rafmagnsbreytingar sem tóku mið af því að sett væri upp ný aðaltafla og þrjár rafmagnstöflur í salinn (ein í hvert kvikmyndapláss sem hægt er að skipta salnum í).
  • Útbúin var móttaka/afgreiðsla í húsinu og ákveðinn hluti af húsnæðinu málaður/sprautaður ásamt fleiri smáverkum.
  • Raflagnafæðingar og lampastæði voru endurnotuð þar sem því varð við komið og það uppfyllti reglugerðir.
OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is