• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon

Bryn Ballett / Alkemistinn

OMR: Verkumsjón og hönnun

Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2009

Bryn Ballett Akademían er listdansskóli Reykjanesbæjar sem hefur það að markmiði að veita nemendum þekkingu og sterka undirstöðu í klassískum ballett og nútímalistdansi á heimsvísu.

Skólinn hefur hlotið viðurkenningu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að kenna listdans á grunn- og framhaldsskólastigi.

Alkemistinn, sem hagnýtir vottuð lífræn hráefni til fjölbreyttrar framleiðslu á ýmsum snyrti- og heilsuvörum.

Alkemistinn er fyrsta fyrirtækið sem hlýtur vottun til lífrænnar framleiðslu í sveitarfélaginu Reykjanesbæ.
Framvinda, umfang og forsendur
Flugvallarbraut 734 var í upphafi tveir gamlir herbraggar með tengibyggingu og var notað sem vopna- og skotfærageymsla fyrir herinn. Húsnæðið var í frekar lélegu ástandi á þessum tíma. Framkvæmdasvæðið í verkefninu var um 800m² og hófst framkvæmdin um miðjan ágúst 2009. Húsnæðinu var síðan skilað, tilbúnu til notkunar fyrir rekstraraðila, um mánaðarmótin september/október 2009. Til að ná þessum markmiðum og kostnaðarramma, sem sett voru í byrjun verkefnisins, varð framkvæmdin að hafa mjög opna hönnun og hámarksendurnýtingu á öllum stigum.

Helstu verkliðir í framkvæmdinni samkvæmt upphaflegri áætlun:
  • Fjarlægja létta milliveggi í lagerrými og gera góðan danssal með dansgólfi sem uppfyllti reglugerðir.
  • Skipta um gólfefni í húsnæðinu öllu.
  • Rafmagnsbreytingar sem uppfylla þurftu íslenska staðla, en í húsnæðinu voru raflagnir og spenna ekki samkvæmt reglugerðum.
  • Byggja upp hljóð- og varmaeinangrandi vegg í enda aðalsalar að innan, klæða hleðsluhurð og fjarlægja í suðurenda.
  • Útbúa móttöku/afgreiðslu í gömlu skotfærageymslunni.
  • Útbúa búningsklefa, skrifstofu og snyrtingu.
  • Útbúa aðstöðu fyrir tilraunastofu, móttöku/afgreiðslu, lager og snyrtingu fyrir aðstöðu náttúrulæknis.

Verkefnið er ágætt dæmi um jákvæða og skemmtilega endurnýtingu á húsnæðinu á Ásbrú. Húsnæðið er fyrrverandi skotfærageymsla varnarliðins og það er ótrúlegt að nú skuli dansarar á öllum aldri, frá þriggja ára og upp í fimmtugt, hlúa að list sinni í ballettskólanum Bryn Ballett. Í húsnæðinu blómstrar líka ungt og glæsilegt sprotafyrirtæki, Alkemistinn, sem hagnýtir vottuð lífræn hráefni til fjölbreyttrar framleiðslu á ýmsum snyrti- og heilsuvörum. 
OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is