• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon
Picture

Eldey - frumkvöðlasetur

OMR: Verkumsjón og hönnun

Aðferðafræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2010 og 2011


Eldey er eitt stærsta og glæsilegasta frumkvöðlasetur landsins
Tilgangurinn með Eldey er að veita þeim frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum aðstöðu sem vilja efla sig með nýsköpun og vöruþróun. 
Framvinda, umfang og forsendur
Grænásbraut 506 hýsti áður verkfræðistofur varnarliðsins og almenna viðhaldsþjónustu hersins. Húsnæðið er í heild 3.300m² á tveim hæðum og skiptist það í kennslu- og fyrirlestrarými, fundaraðstöðu, skrifstofu- og smiðjuaðstöðu fyrir frumkvöðlafyrirtæki. Miklar endurbætur hafa staðið yfir á húsnæði Eldeyjar til að tryggja að frumkvöðlasetrið geti boðið upp á bestu mögulegu aðstöðu fyrir frumkvöðla til að stíga sín fyrstu skref, þróa viðskiptahugmyndir sínar og koma sprotafyrirtækjum á legg. Umbreytingin sem OMR hannaði og hafði verkumjón með náði til endurbóta á 2. hæð hússins haustið 2010 og á neðri hæð var það fjölnotasalurinn Svanurinn og smiðjurýmin vorið 2011.

Efri hæðin var í frekar slæmu ástandi og mikið völundarhús, með mörgum gluggalausum rýmum. Ennfremur var mikið um draugalagnir sem þurfti að fjarlægja. 

Helstu atriði, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru sem hér segir:
  • Öll efri hæðin var opnuð en skipulag á lögnum og snyrtingum miðaði við að raska sem minnstu og öll skilrúm og innréttingar voru endurnýtt.
  • Rýmin voru endurskilgreind að mestu leyti og tryggt að allt rými hefði aðgang að náttúrulegri loftræsingu og dagbirtu.
  • Raflagnafæðingar og lampastæði voru endurnotuð þar sem því varð við komið og það uppfyllti reglugerðir.
  • Kerfisloft voru endurnotuð og endurbætt í húsnæðinu vegna þess að lampastæði voru endurnotuð í öllum rýmum.
  • Loftræstikerfi var einfaldað og lagfært þar sem það var til staðar.
  • Tveir gamlir símaklefar, sem voru til staðar í öðru húsnæði og átti að farga, voru endurnýttir sem litlir gsm-símaklefar í þessu opna rými og setja skemmtilegan svip á hæðina.
  • Þó nokkuð af hurðum var tekið til hliðar (verður geymt á lager) sem ekki var notað var í verkefninu og verður notað í önnur verkefni.
  • Skipta þurfti út öllum gólfefnum vegna þess að styrkja þurfti undirstöður í gólfinu og sett var ódýrt, snyrtilegt plastparket á alla hæðina.
  • Allt aðgengi upp á hæðina var opnað, og hannað og smíðað á staðnum ódýrt og fallegt handrið.
  • Allir veggir og klæðingar voru endurnýttir og lagfærðir með viðgerðum og málaðir.

Smiðjurými,  hæðin var í frekar slæmu ástandi og mikið af gluggalausum rýmum. 

Helstu atriði í Svaninum og Smiðjurými, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru sem hér segir:
  • Rýmin voru opnuð og skilgreind upp á nýtt og veggir og loft sem voru fjarlægð voru endurnýtt í nýtt skipulag.
  • Loftræstikerfi var einfaldað og lagfært þar sem það var til staðar.
  • Skipta þurfti út öllum gólfefnum og sett var ódýrt epoxy gólf á smiðjurými og steinteppi á gólf í Svaninum.
  • Allt aðgengi upp á hæðina var opnað og hannað og smíðað á staðnum ódýrt og fallegt handrið.
  • Veggir og klæðingar voru endurnýttir og lagfærðir með viðgerðum og málaðir.
OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is