Eldvörp – fyrirtækjahótel
OMR: Verkumsjón og hönnun
Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin) Verktími: 2008 Skrifstofuhúsnæðið í Eldvörpum var opnað í byrjun maí 2009. Hugmyndin á bak við Eldvörp er að á Ásbrú sé ávallt til reiðu húsnæði fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem stunda nýsköpun og vilja starfa að uppbyggingunni á Ásbrú.
Hugmyndafræði Eldvarpa kemur frá vísindagörðum á Norðurlöndum þar sem frumkvöðlafyrirtæki hafa aðstöðu með stoðfyrirtækjum á borð við verkfræðifyrirtæki og auglýsingastofu. Samvera þessa aðila skapar umhverfi þar sem frjóar hugmyndir verða til og finna sér farveg og tengslanet eykst og styrkist. |
Framvinda, umfang og forsendur
Framkvæmdir hófst í byrjun janúar 2008 og lauk í lok apríl 2008. Húsnæðið var í frekar slæmu ástandi og var mikið völundarhús, með mörgum gluggalausum rýmum og á flestum gólfum var gólfefni sem hafði að geyma asbest og þurfti að fjarlægja alveg úr húsinu. Ákveðið var að nota íslenskt gólfefni. Efnið heitir steinteppi og eru steinvölurnar í gólfefninu úr fjöru á Suðausturlandi. Þetta gólfefni hefur gefið góða raun og hefur síðan verið notað í a.m.k. fjórum öðrum verkefnum á svæðinu. Allt skipulag var einfaldað og opnað sem tryggir öllum rýmum náttúrulega loftræsingu og birtu inn í rýmin. Húsnæðið telur um 1.800 m² og eru skrifstofueiningar á bilinu 15─60 m². Hægt er að skipta rýmum niður eða sameina eftir þörfum leigjenda. Í húsnæðinu hefur verið útbúið 40 m² fullbúið fundaherbergi auk tveggja smærri fundaherbergja. Ennfremur er 100m² fyrirlestrasalur í húsinu og sameiginleg eldhúsaðstaða, kaffistofa og snyrtingar. Breytingin á húsnæðinu þykir hafa tekist mjög vel og það er mikið notað fyrir námskeið, fyrirlestra og kynningar, auk þess að hýsa fjölda fyrirtækja.
Helstu atriði, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru sem hér segir:

- Skipulag á lögnum og snyrtingum var miðað við að raska sem minnstu og öll skilrúm og innréttingar voru endurnýtt.
- Rými voru endurskilgreind að mestu leyti og tryggt að öll rými hefðu aðgang að náttúrulegri loftræsingu og dagsbirtu.
- Raflagnafæðingar og lampastæði voru endurnotuð eftir því sem við varð komið og það uppfyllti reglugerðir.
- Kerfisloft voru endurnýtt í húsnæðinu vegna þess að lampastæði voru endurnotuð í flestum rýmum en gera þurfti við loft á um 250 m² í anddyri.
- Loftræstikerfi var lagfært og endurnýtt.
- Hurðir í húsnæðinu voru allar notaðar áfram, lagfærðar og yfirfarnar eftir því sem við átti.
- Þó nokkuð af hurðum var tekið til hliðar (geymdar á lager) sem ekki var notað í verkefninu en hefur verið notað í önnur verkefni eða verður notað síðar.
- Skipta þurfti út öllum gólfefnum vegna þess að gólfflísar undir teppum í húsnæðinu reyndust hafa að geyma asbest. Sett var íslenskt steinteppi á gólf í öllu húsinu.
- Allir veggir og klæðingar var endurnýtt, lagfært og málað.