Háaleitisskóli og Heilsuleikskólinn HáaleitiOMR: Verkumsjón og hönnun
Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin) Verktími: 2008 og 2009 Háaleitisskóli á Ásbrú er grunnskóladeild fyrir yngri nemendur sem eiga heima á Ásbrú og rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla frá skólaárinu 2008-2009. Aðstaða skólans: Deildin hefur yfir að ráða 8 kennslustofum, íþróttasal til hreyfikennslu auk stjórnunarrýmis, aðstöðu sérfræðinga Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar og skólahjúkrunarfræðings. Sumarið 2009 bættust við tvær sérgreinastofur, mötuneyti , fjölnota salur, og aðstaða fyrir forskóla Tónlistarskólans. Leikskólinn var opnaður 1. september 2008 og er sjálfstætt starfandi skóli, rekinn af Skólum ehf., og er með þjónustusamning við Reykjanesbæ. Leikskólinn starfar eftir Heilsustefnunni og er Heilsuleikskóli. Háaleiti er tveggja deilda aldurskiptur leikskóli og er staðsettur á háskólasvæðinu Ásbrú. Tveir fataklefar eru í húsinu, annar er fyrir yngri börnin og hinn er fyrir þau eldri. Í miðrými hússins er stór og langur gangur sem er m.a. nýttur í hreyfingu og málörvun. Öðru megin við ganginn eru tvær deildar og fataklefar, hinum megin við ganginn er ein deild, listasmiðja og hreyfisalur. |
Framvinda, umfang og forsendur
Háaleitisskóli var fyrsta verkefnið á Ásbrú þar sem OMR aðferðafræðinni við endurnýtingu byggingarefnis var meðvitað beitt af hagsmunaaðilum. Húsnæðið hýsti áður grunnskóla fyrir börn varnarliðsmanna og beinast lá við að athuga hvort þessi fyrrum skóli gæti ekki þjónað fjölskyldum á Ásbrú. Húsnæði grunnskólans var skipt í tvennt, og hýsir nú annars vegar grunnskóla og hinsvegar heilsuleikskóla. Hönnun verksins var mjög fljótandi og krafðist þess að hugsað væri vel út fyrir kassann. Í skipulagi var miðað við að raska sem minnstu og innréttingar og húsgögn voru endurnýtt eftir því sem kostur var og var gengið mjög langt í allri endurnýtingu á fyrirliggjandi byggingarefnum. Aðgengi að skólanum var hagrætt þannig að hægt var að taka hluta af húsnæðinu í notkun sem erfitt hefði verið annars að nýta.
Framkvæmdir hófust í júní 2008 og húsnæðið var tekið í notkun í ágúst sama ár. Sumarið 2009 bættust við tvær sérgreinastofur, mötuneyti, fjölnotasalur og aðstaða fyrir forskóla Tónlistarskólans. Verkefnið enn eitt dæmið um jákvæða og skemmtilega endurnýtingu á húsnæðinu á Ásbrú.
Helstu atriði framkvæmdarinnar voru eftirfarandi:

|
Grunnskólinn
|
Leikskólinn
|