Heilsuhótel ÍslandsOMR: Verkumsjón og hönnun
Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin) Verktími: 2009 Í maí 2009 opnaði nýtt og glæsilegt Heilsuhótel að Lindarbraut 634 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Húsnæðið var áður notað sem einstaklingsíbúðir fyrir hermenn sem dvöldust hér um skamman tíma. Heilsuhótelið er opið allan ársins hring. Húsnæðið er allt hið glæsilegasta og stendur vel undir nafni sem fyrsta flokks heilsuhótel. Í húsnæðinu eru 45 herbergi, matsalur, setustofa, leikfimisalur, gufubað, infra-rauður klefi og heitur útipottur. Stór sólbaðspallur er í garðinum. Öll herbergi eru með parketi á gólfum og eru baðherbergin bæði með baðkari og sturtu. |
Framvinda, umfang og forsendur
Lindarbraut 634 áður var notað sem einstaklingsíbúðir fyrir hermenn sem dvöldust hér um skamman tíma. Húsnæðið er tæplega 2290 m² að stærð á tveimur hæðum. Framkvæmdin hófst með breytingu á rafmagni, rifum og síðan uppbyggingu í byrjun mars 2009. Verkkaupi skilaði síðan rekstraraðila/leigutaka húsnæðinu í maí 2009. Undirbúningur og verktími var mjög skammur og miðaðist allt verkefnið við að lágmarka kostnað sem mest, að endurnýtingarstuðull væri hár en uppfyllti samt miklar væntingar rekstraraðila. Lagt var upp með að lagfæra og endurnota sem mest í húsnæðinu.
Skipulag á lögnum og snyrtingum var miðað við að raska sem minnstu og skilrúm og innréttingar voru endurnýtt.
Helstu atriði, þar sem annaðhvort endurnýting eða sérstök hagræðing náðist í þessu verkefni, voru sem hér segir:

- Rými voru endurskilgreind og aðlöguð að þó nokkru leyti, þar á meðal:
- Þvottahúsi á neðri hæð breytt í afgreiðslu.
- Þvottahúsi á efri hæð breytt í uppþvotta- og lagerrými fyrir eldhús.
- Þvottahús útbúið í útbyggingu sem stendur við húsið, sem notuð hafði verið af reykingamönnum.
- Útbúin heilsulind og ristilskolunarrými á neðri hæð.
- Raflagnafæðingar og lampastæði voru endurnotuð eftir því sem við varð komið og það uppfyllti reglugerðir.
- Kerfisloft voru endurnotuð og endurnýtt og lampastæði endurnotuð á göngum.
- Hurðir, innréttingar, gólfefni á göngum og herbergjum var notað áfram og lagfært og yfirfarið þar sem við átti, enda voru þessi efni yfirleitt í ágætis ástandi.
- Þó nokkuð af efni og tækjum, sem var ekki notað í verkefninu, var lagt til hliðar og sett á lager og hefur verið notað í önnur verkefni eða verður notað síðar.