• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon
Picture

Íþróttahúsið Ásbrú

OMR: Verkumsjón og hönnun

Aðferðafræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2010

Íþróttahúsið á Ásbrú er stórglæsilegt fjölnota íþróttahús er rekið á Ásbrú í Reykjanesbæ. Húsið er einstakt í sinni röð er fjölbreytni og möguleika varðar í húsinu.
Framvinda, umfang og forsendur
Íþróttahúsið þjónaði áður hermönnum og fjölskyldum þeirra. Húsið var líka æfingar- og keppnishús bæði handboltans og körfuboltans á Íslandi áður en farið var að reisa íþróttamannvirki í fullri stærð hér á landi. Í húsinu er stór íþróttasalur sem hægt er að skipta í tvennt, fjórir minni salir (skvass), tveir fullbúnir líkamsræktarsalir og glæsilegur speglasalur á 2. hæð, ásamt búningsklefum. Ennfremur er ónotuð sundlaug í viðbyggingu við húsið.

Húsnæðið var áður í frekar slæmu ástandi og skipulag og aðgengið um húsnæði ekki ásættanlegt. Umbreytingin sem OMR hannaði og hafði verkumjón með náði til endurbóta á klefum, snyrtingum, líkamsræktarsölum, stóra salnum og almennar lagfæringar eins og málun að innan og utan, auk raflagnarbreytinga. Framkvæmdirnar fóru fram á árinu 2010. Mjög hátt endurnýtingarhlutfall var í framkvæmdinni. 
OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is