• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
    • Óli Þór Magnússon

Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs

OMR: Verkumsjón og hönnun

Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin)

Verktími: 2009-2010 

Kjölfestuþáttur í uppbyggingu Ásbrúar, fyrrum varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli, er Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sem var stofnaður vorið 2007.

Skólinn er sem stendur með fjórar deildir: Í Háskólabrú fer fram undirbúningsnám fyrir háskólanám, Heilsu- og uppeldisskóli Keilis sem leggur áherslu á að þróa og bjóða upp á nám á sviði heilsu, heilbrigðis, íþrótta- og uppeldisfræða, Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt háskólanám í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands og Flugakademía Keilis með margvíslegt flugtengt nám undir einum hatti. 
Framvinda, umfang og forsendur
Grænásbraut 910 á Ásbrú, hýsti upphaflega framhaldsskóla á vegum bandaríska hersins. Keilir keypti bygginguna í frekar lélegu ástandi 2007, eftir brottför varnarliðsins, en þá uppfyllti húsnæðið ekki íslenskar reglugerðir m.t.t. raflagna, öryggisatriða og almennra staðla. Framkvæmdasvæðið var um 5550 m². Framkvæmdir við 1. áfanga, sem hýsir Orku- og tækniskólann, hófust í byrjun júní 2009 og var umfangið um þriðjungur af heildarframkvæmdinni. Fyrsta áfanga lauk um miðjan ágúst 2009. Framkvæmdir við 2. áfanga hófust síðan um miðjan apríl 2010 og lauk í lok ágúst 2010. 
Helstu breytingar í framkvæmdinni voru:
  • Innréttaðar voru nýjar kennslustofur, móttökueldhús, ný móttaka/anddyri, bókasafn, mat- og kaffisalur, starfsmannaaðstaða og snyrting nemenda og starfsmanna. 
  • Uppsetning og lagfæring á hurðum, gluggum og nýjum björgunaropum. 
  • Skólanum var skipt í fjórar brunasamstæður eftir breytingar. 
  • Bætt hefur verið úr brunaþoli veggja milli skólastofa og björgunarop hafa verið sett á allar skólastofur sem ekki eru með tvær útgönguleiðir. 
  • Í byggingunni er komið nýtt sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi tengt viðurkenndri vaktstöð, samkv. reglum Brunamálastofnunar. 
  • Rafmagnsbreytingar/spennubreyting tóku í framkvæmdinni mið af að uppfylla íslenska staðla, en í húsnæðinu voru raflagnir, ljós og spenna ekki samkvæmt reglugerðum.
Helstu verkliðir í framkvæmdinni sem skiluðu mestri hagræðingu, bæði m.t.t. kostnaðar og lágmörkuðu notkun á nýju byggingarefni í framkvæmdinni, voru:
  • Við hönnun á skipulagi á veggjum og lögnum náðist mikil endurnýting.
  • Raflagnafæðingar voru endurnotaðar þar sem því varð við komið.
  • Kerfisloft voru endurnotuð og endurnýtt, bæði úr verkefninu og kerfisloftaplötur komu einnig úr öðrum verkefnum þar sem plötunum hafði verið haldið til haga en ekki urðaðar.
  • Húsnæðið var stækkað um 50 m² við að nýta fyrirliggjandi port og skýli. Annars vegar var búið til forrými í anddyri og hinsvegar geymsla fyrir skólann.
  • Hurðir í húsnæðinu voru allar nýttar þar sem því varð við komið. Hurðirnar voru lagfærðar og málaðar. Af lager frá eldri verkefnum komu milli 15 og 20 hurðir sem nýttar voru í verkefnið.
  • Eðlisfræðistofur voru endurnýttar að mjög miklu leyti, bæði hvað varðar innréttingar, tæki og húsgögn. Meðal annars var tæki úr Háskóla Íslands sem hætt var að nota endurnýtt í Keili.
  • Gamli íþróttasalurinn og búningsklefar sem honum fylgdu voru endurnýttir til verklegrar kennslu fyrir Orku- og tækniskólann.
OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is