Skógarbraut 945 - Skrifstofuhúsnæði
OMR: Verkumsjón og hönnun
Aðferðarfræði: Endurnýting (OMR-aðferðafræðin) Verktími: 2011 Í október 2011 opnaði skrifstofuhúsnæðið að Skógarbraut 945. Í húsnæðinu eru meðal annars skrifstofur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, KALKA (Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.) og fleiri samstarfsverkefni. |
Framvinda, umfang og forsendur
Þarfagreining og endurhönnun á húsnæðinu Skógarbraut 945 á Ásbrú miðaði að því SSS, HES og Kalka gæti með góðu móti starfrækt starfsemi sína í húsnæðinu og tekið með sóma á móti öllum þeim fjölda gesta sem heimsækja þau. Framkvæmdasvæðið var um 552 m² og hófust framkvæmdir í byrjun ágúst 2011 og lauk um miðjan júní 2011.
Endurnýtingin í verkefninu var mjög há og byggingarefni sem var rifið eða farlægt úr verkefninu og hægt er að endurnýta var sett á endurnýtingarlager. Vegna þröngs kostnaðarramma var reynt að finna ódýrari lausnir, og helst framleiddar innanlands, fyrir t.d. gólfefni o.fl. Hurðir í húsinu voru allar endurnýttar og eldhúsinnrétting og eldhústæki voru endurnýtt úr Skógarbraut 946. Helstu breytingar í framkvæmdinni voru að innrétta skrifstofur, eldhús, nýja móttöku/anddyri, nýjar geymslur og skjalageymslu, eldhús og starfsmannaaðstöðu, tvö ný fundarherbergi og snyrtingar starfsmanna með sturtum. Utanhúss var húsið málað og aðgengi fyrir alla tryggt.