• Forsíða
  • Verkefni
  • Um OMR
    • Aðferðafræði
      • Óli Þór Magnússon

      Verkefni

      Hér má sjá yfirlit verkefna sem OMR hefur komið að. Listinn er engan veginn tæmandi en gefur góða yfirsýn yfir helstu verkefnin.

      Picture

      Andrews

      Fyrrum kvikmyndahús hersins hefur fengið stærra hlutverk á Ásbrú en þar má nú sýna kvikmyndir, leiksýningar, halda tónleika, ráðstefnur og margt margt fleira.
      Nánar
      Picture

      Atlantic Studios

      Stór svartur kassi við Grænásbraut 501 hýsti áður flugvélar, bíla og tæki en hýsir í dag stærsta kvikmyndaver Íslands.
      Nánar
      Picture

      Eldvörp

      Þar sem offiserar gengu áður um er nú glæsilegt skrifstofuhúsnæði fyrir nýsköpunar- og frumkvöðlafyrirtæki og stoðfyrirtæki þeirra, en Flugvallarvegur 752 hýsti áður höfuðstöðvar varnarliðsins.
      Nánar
      Picture

      Keilir

      Kjölfestuþáttur í uppbyggingu Ásbrúar, fyrrum varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli, er Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sem var stofnaður vorið 2007.
      Nánar
      Picture

      Heilsuhótel Íslands

      Þann 23. maí 2009 opnaði nýtt og glæsilegt Heilsuhótel á Ásbrú í húsnæði sem áður var notað sem einstaklingsíbúðir fyrir hermenn sem dvöldust hér um skamman tíma.
      Nánar
      Picture

      Bryn Ballett

      Í gömlum bröggum þar sem áður var vopna- og skotfærageymsla bandaríska hersins er nú ballettskóli og -verslun, auk þess sem fyrirtækið Alkemistinn framleiðir þar lífrænar húðsnyrtivörur.
      Nánar
      Picture

      Eldey

      Grænásbraut 506 hýsti áður verkfræðistofur varnarliðsins og almenna viðhaldsþjónustu hersins. Í dag heitir húsið Eldey og er eitt stærsta og glæsilegasta frumkvöðlasetur landsins.
      Nánar
      Picture

      Háaleitisskóli

      Háaleitisskóli var fyrsta verkefnið á Ásbrú þar sem OMR aðferðafræðinni við endurnýtingu byggingarefnis var meðvitað beitt af hagsmunaaðilum.
      Nánar

      Picture

      Íþróttahúsið Ásbrú

      Íþróttahúsið á Ásbrú er stórglæsilegt fjölnota íþróttahús í Reykjanesbæ. Húsið er einstakt í sinni röð hvað varðar fjölbreytni og möguleika í notkun.
      Nánar
      Picture

      Skrifstofuhúsnæði 945

      Í húsnæðinu eru meðal annars skrifstofur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum,  Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, KALKA (Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.) og fleiri samstarfsverkefna.
      Nánar
      Picture

      KADECO

      Skrifstofur Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco, eru staðsettar að Skógarbraut 946 á Ásbrú. Grunnskipulagið hefur ætíð þótt henta illa fyrir starfsemina auk þess sem  húsnæðið uppfyllti ekki að öllu leyti kröfur og reglugerðir. Sumarið 2011 var farið í gagngerar endurbætur á húsnæðinu.
      Nánar
      Picture

      Officer's Club

      Í apríl 2010 opnaði nýr og endurbættur „Offinn“ á Ásbrú sem fyrsti áfangi í endurnýtingu hússins sem hluti af nýju herminjasafni. Hönnun átti að endurvekja upprunalegt útlit og endurvinna sem mest af byggingarefnum. Húsnæðið er allt hið glæsilegasta.
      Nánar

      Picture

      Eldhús fyrir HSS

      Heildarendurnýjun á eldhúsi og matsal Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Skólavegi 8 í Reykjanesbæ. 

      Nánar
      Picture

      Sandgerðishöll

      Í júní 2009 var vígð ný stúka við knattspyrnuvöllinn í Sandgerði sem fyrsti áfangi í byggingu knattspyrnuhallar.
      Nánar

      OMR - Sími 421-1240 - omr@omr.is